1. grein
Félagið heitir Sportkafarafélag Íslands, skammstafað SKFÍ, og er varnarþing þess í Reykjavík.
2. grein
Tilgangur félagsins er að:
1. Vinna að framgangi sportköfunar og standa vörð um hana með því að stuðla að ábyrgri
afstöðu til hennar meðal félaga og annarra.
2. Vinna að og fylgjast með nauðsynlegum endurbótum á lögum og reglugerðum er viðkoma
sportköfun.
3. Stuðla að auknum skilningi á málefnum félagsins út á við.
4. Ná sem viðtækustu samstarfi við önnur félög og einstaklinga er varðar sportköfun.
5. Efna til félagsstarfsemi s.s, funda, mannfagnaða og kynninga.
6. Vera fulltrúi sportkafara gagnvart hinu opinbera.
7. Gefa félagsmönnum gott fordæmi um umgengni og verndun lands og sjávar.
3. grein
Allir geta orðið félagar. Umsækjendur yngri en 18 ára þurfa að leggja fram skriflegt samþykki foreldra
eða forráðamanna. Þeim einum sem hafa alþjóðleg köfunarréttindi sem samþykkt eru af félaginu og
uppfylla kröfur samkvæmt íslenskum lögum leyfist að kafa á vegum félagsins.
4. grein
Stjórn er heimilt að leggja fram á aðalfundi tillögu að heiðursfélögum sem unnið hafa markverð störf
í þágu sportköfunar á Íslandi. Til kjörs heiðursfélaga þarf samþykki 2/3 hluta mættra fullgildra félaga
á aðalfundi. Tillögur um kjör heiðursfélaga skulu vera á dagskrá aðalfundar.
Aðalfundur
5. grein
Haldinn skal aðalfundur í febrúar ár hvert. Skal þar taka fyrir venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins. Stjórn boðar til aðalfundar með minnst 15 daga fyrirvara í miðlum félagsins.
Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málum félagsins og er því aðeins löglegur sé löglega til hans
boðað.
6. grein
Rétt til setu, atkvæðagreiðslu og kjörgengis á aðalfundi hafa mættir fullgildir félagar, en fullgildir eru
þeir félagar sem skuldlausir eru við félagið og hafa greitt félagsgjöld þess árs sem aðalfundur fer fram
á, ásamt heiðursfélögum. Stjórn getur einnig boðið öðrum aðilum á fundinn ef sérstök ástæða þykir
til.
7. grein
Formaður setur fundinn og kosinn er fundarstjóri. Fundarstjóri gerir tillögu um fundarritara og sker
úr um öll atriði varðandi meðferð mála og atkvæðagreiðslu nema sérstök ástæða sé að vísa því til
fundarins.
8. grein
Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirfarandi mál:
1. Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
2. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga síðasta árs.
3. Lagabreytingar samkvæmt 9. grein laga félagsins.
4. Kosning stjórnar, varamanna og óháðs skoðunarmanns reikninga.
5. Kosning í nefndir.
6. Tillögur um árgjald í félagssjóð.
7. Önnur mál.
Kosningar skulu vera skriflegar, nema fundurinn samþykki annað. Allar tillögur skulu vera skriflegar.
Stjórnarskipti skulu fara fram strax að loknum aðalfundi.
9. grein
Lagabreytingar má aðeins leggja fram til samþykktar á aðalfundi. Ná þær aðeins fram að ganga að
2/3 hlutar mættra fullgildra félaga séu þeim samþykkir. Séu þær felldar og bornar upp samhljóða eða
efnisbreytingalaust á næsta aðalfundi ná þær aðeins samþykki með 3/4 hluta atkvæða mættra
fullgildra félaga. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn a.m.k. 3 vikum fyrir aðalfund og
þær tilkynntar félögum í aðalfundarboði. Efni lagabreytinga skal aðgengilegt félögum eigi síðar en 7
dögum fyrir aðalfund í miðlum félagsins.
Stjórn og nefndir
10. grein
Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða 1/5 hluti fullgildra félaga hið minnsta óskar
þess, enda geri þeir áður grein fyrir fundarefninu. Til aukaaðalfundar skal boða skriflega með minnst
tveggja vikna fyrirvara í miðlum félagsins.
11. grein
Stjórn félagsins skipa fimm, formaður og fjórir meðstjórnendur og eru þeir kosnir á aðalfundi til eins
árs í senn. Sérstaklega skal kjósa formann og að auki tvo varamenn. Á fyrsta stjórnarfundi eftir
aðalfund skiptir stjórnin með sér verkum. Forfallist aðalmenn í stjórn eða hætti störfum, skal kalla til
varamann sem tekur sæti í fullskipaðri stjórn. Framboð til formanns og stjórnar skulu hafa borist
fráfarandi stjórn a.m.k. 7 dögum fyrir aðalfund og þau kynnt félagsmönnum eigi síðar en 5 dögum
fyrir aðalfund, í miðlum félagsins. Stjórn félagsins skal setja sér starfsreglur.
12. grein
Formaður boðar til stjórnarfundar ef þörf krefur eða tveir stjórnarmeðlimir óska þess enda hafi þeir
áður gert grein fyrir fundarefni. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundi, þó er ályktun því aðeins
lögleg að minnst þrír stjórnarmenn samþykki hana. Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði formanns.
Stjórn hefur á hendi sér allar framkvæmdir milli aðalfunda, hefur eftirlit með nefndum og kemur
fram fyrir hönd félagsins. Formann ásamt tveimur meðstjórnendum þarf til að skuldbinda félagið
með undirskriftum sínum.
13. grein
Stjórn félagsins skipar yfirpressustjóra sem hefur yfirumsjón með loftpressum félagsins, notkun og
viðhaldi. Yfirpressustjóri skal vera vel að sér um meðferð og viðhald pressanna. Yfirpressustjóri velur
pressustjóra sem eru staðgenglar hans. Yfirpressustjóri ákveður í samráði við stjórn hvaða reglur
gilda um pressun á kúta félagsmanna. Einungis tilgreindum pressustjórum er heimil notkun á
loftpressum félagsins.
14. grein
Stjórn skipar umsjónarmann köfunarferða á vegum félagsins. Hann skipuleggur köfunardagskrá í
samráði við stjórn. Umsjónarmaður raðar köfunarstjórum á félagsferðir. Í köfunarferðum félagsins
skulu félagar lúta reglum félagsins og kafa innan ramma reynslu sinnar og heimilda.
15. grein
SKFÍ ber ekki ábyrgð á slysum, meiðslum, skemmdum eða nokkru öðru tjóni sem hlotist getur vegna
æfinga, ferða eða sportköfunar á vegum félagsins.
16. grein
Félagsfundi skal halda ef a.m.k. 10% fullgildra félaga krefjast þess með bréfi til stjórnarinnar og skal
fundarboðun þá fara fram eigi síðar en einni viku eftir að krafan barst til stjórnarinnar. Félagsfundi
skal boða með nægum fyrirvara með auglýsingu í miðlum félagsins,
Fjármál
17. grein
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórn skal velja óháðann skoðunarmann bókhalds félagsins
fyrir starfsárið.
18. grein
Rekstur félagsins skal fjármagnaður með félagsgjöldum, styrkjum og þ.h. Fjármuni félagsins skal
einungis nota í þágu þess. Tekjur renna í sjóð félagsins og skal honum varið í framkvæmdir og rekstur
eftir settum reglum á hverjum tíma. Fjórðungur af nettóhagnaði félagsins ár hvert skal renna í
varasjóð. Sjóðurinn skal þó aldrei vera stærri en 10% af heildareignum félagsins. Varasjóði þessum
má einungis ráðstafa ef upp koma neyðartilfelli, að mati stjórnar. Enginn félagi hefur tilkall til hluta af
sjóðnum þó hann hverfi úr félaginu eða því sé slitið.
Stjórn skal þó heimilt, á meðan óvissa er um staðsetningu félagsheimilisin í framtíðinni, að safna í
varasjóð meira en 10% af heildareignum félagsins.
19. grein
Árlegt félagsgjald er greitt fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. desember. Gjalddagi og eindagi
félagsgjalda skal vera einni vikur fyrir aðalfund.
Úrsögn og brottvikning
20. grein
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send félagsstjórn. Úrsögn tekur gildi einum mánuði eftir að
hún berst stjórninni. Félagsgjöld eru ekki endurgreidd þó að við úrsögn sé ekki liðið yfirstandandi
gjaldaár.
21. grein
Brjóti félagi lög eða reglur félagsins, sýni agaleysi, vítavert eða ítrekað kæruleysi við sportköfun er
stjórninni heimilt að setja hann í bann um tiltekinn tíma. Stjórn getur vikið félaga úr félaginu en
ákvörðun hennar er heimilt að áfrýja til næsta aðalfundar.
Félagsslit
22. grein
Félaginu verður aðeins slitið á aðalfundi sem sérstaklega hefur verið boðaður í því skyni og verður að
minnsta kosti helmingur atkvæðisbærra manna að vera mættur og 3/4 hluti hinna mættu
fundarmanna samþykkir slitu þess. Verði félagsslit ákveðin skal Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands
falin umsjón eigna félagsins þar til annað félag í svipuðum tilgangi verður stofnað og ganga eignirnar
þá til hins nýja félags.
Þannig samþykkt á aðalfundi SKFÍ, 25. febrúar 2023